09. janúar 2007 klukkan 00:45
Fyrsti skóladagurinn var í dag og neyddist ég því að snúa sólarhringnum við enda var hann kolöfugur. Viðsnúningurinn var víðar í kringum og fyrsti kúrsinn sem ég fór í fjallar um samkynhneigð tónskáld á seinustu öld í Bandaríkjunum og Englandi og hvernig þau tóku þátt í að móta tónlistarlega sjálfsvitund þeirra þjóða þrátt fyrir að hafa verið síhoppandi á eigið kyn á tímum sem það var bannað. Mun fleiri þekkt tónskáld en ég áttaði mig á voru í þess kyns sprangli og má þar nefna John Cage, Bernstein, Copland, Lully, Samuel Barber, hugsanlega Handels og Schubert, auk auðvitað Tchaikovskys og Brittens. Þrusukúrs!
p.s.
Ég kominn með síma á ný!
Egill Guðmundsson
05. janúar 2007 klukkan 10:08
Jólafríið hefur einhvern veginn fuðrað upp. Sólarhringurinn er í einhverju algjörasta gumsi sem ég hef lent í auk þes sem ég hef fitnað og hef mun meiri óbeit á sjálfum mér en ella. (Bara grín, þetta er ekki bloggið hjá Hauki).
Samt sem áður hefur þetta ekki verið upp á marga fiska hjá mér. Er þó reyndar búinn að nýta eitthvað af fríinu í að lesa orchestration bækur enda tekur harka dauðans við í skólanum þessa önn og svo er ég kominn aftur í átak enda er lífstakmarkið að verða sundfatafyrirsæta.
Egill Guðmundsson
03. janúar 2007 klukkan 09:52
Ég þurfti náttúrulega að týna farsímanum mínum niðri í bæ á nýársnótt og þar með öllum símanúmerunum mínum líka. Þeir sem þurfa að hafa samband við mig neyðast því nú í bili að hringja í heimasímann minn sem er 587-4587 (já, ég veit að þetta er speisað kúl númer) eða bara senda mér tölvupóst á sokkasafi@simnet.is
Gleðilegt ár annars!
Egill Guðmundsson
05. desember 2006 klukkan 02:05
Ég fór í gær að sjá leikritið Best í heimi í Iðnó ásamt Brad og samleigjanda hans Alexu. Að sumu leyti fannst mér þetta ágætt og að sumu leyti drasl. Leikurinn var fínn hjá 75% leikaranna og kom það mér á óvart hve vel ég skildi íslenskuna hjá þeim en þau eru öll útlensk. Leikritið er mjög sundurskorið og minnir oft á tíðum á þátt hjá Spaugstofunni sem er langt frá því að vera ofarlega á lista hjá mér. Brad og Alexia voru samt mjög sátt við leikritið sem þýðir að maður hljóti að þurfa að vera útlendingur á Íslandi til að geta hlegið að þessu.
Ég vil því hlutlaust beina því til allra sem ætluðu sér að sjá þessa sýningu að fara frekar á Blóðbrúðkaupið í Borgarleikhúsinu.
Egill Guðmundsson
01. desember 2006 klukkan 08:04
Mig hefur hrjáð alveg óheyrileg leti undanfarna daga og kem ég ekki nokkru í verk. Þar sem að ég hafði lítinn tíma fyrir skólann á meðan ég var á kafi niðri í leikhúsi hrönnuðust verkefnin upp. Það eru letiköst sem þessi sem komu af stað orðatiltækinu
að það væri Egill í fólki þegar einhver nennti ekki nokkrum sköpuðum hlut. Leti mín hefur glatt Magnús Inga óeðlilega í gegnum tíðina og notaði hann þetta orðatiltæki óspart með sóðaglött á vör þegar að færi gafst. Á stundum sem þessum velti ég því óneitanlega fyrir mér hvort gimpin höfðu ekki rétt fyrir sér. Það er kannski letidýr í ættartrénu mínu . . .
Egill Guðmundsson
22. nóvember 2006 klukkan 21:14
Þá styttist í frumsýningu leiklistardeildar LHÍ á
Blóðbrúðkaupinu eftir Lorca á Litla sviði Borgarleikhússins. Ég samdi tónlistina og sé einnig um aðra hljóðeffekta og naut þar dyggrar aðstoðar Kjartans Ólafssonar og Egils Ingibergssonar. Ég hef verið á kafi á æfingum þar undanfarin kvöld og þetta er allt að smella saman núna. Frumsýnt verður á föstudaginn 24. nóvember og svo verður sýnt stíft fram að 10. desember. Ég hvet vissulega alla til að mæta! Hvenær sýnt er má athuga
hér!
Egill Guðmundsson
20. nóvember 2006 klukkan 18:06
Ég vaknaði með harðfiskbragð í munninum í morgun. Ég hef ekki borðað harðfisk í marga daga!
Egill Guðmundsson
13. nóvember 2006 klukkan 07:15
Nú er Árni Johnsen bara mættur sterkur aftur í pólitíkina. Til hamingju Sjálfstæðismenn!
Egill Guðmundsson
09. nóvember 2006 klukkan 03:08
Mikið afskaplega hefur umræðan um innflytjendamálin farið barnalega af stað. Þessi mál þarf svo sannarlega að ræða en Frjálslyndir hafa þurft að eyða meiri orku en góðu gegnir í að segjast ekki vera rasistar. Hvað er málið? Loksins komu fram stjórnmálamenn sem þora að segja eitthvað. Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís komu mér á óvart með ótrúlega hallærislegum athugasemdum og fengu mig til að efast enn frekar um Samfylkinguna. Gaman væri að heyra hvað Hauki finnst um þessi mál, og hann gæti jafnvel sett saman ljóð fyrir okkur.
Egill Guðmundsson
02. nóvember 2006 klukkan 05:25
Nú er málið að fara til Færeyja og lemja homma. Færeyingum finnst það allt í lagi því hjónaskilnaðir þar eru svo sjaldgæfir.
Egill Guðmundsson